Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist ekki á álver í Helguvík þegar hún taldi upp fyrirhugaðar stórframkvæmdir hér á landi á Alþi... 
18. september 2010 - Greinar og pistlar Magnea Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ brást við grein minni Skýjaborgin hrunin í VF. 17.sept. Greinin Magne... 
Bréf til Magneu
Magnea Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ brást við grein minni Skýjaborgin hrunin í VF. 17.sept. Greinin Magneu hefst þannig; ,,Skúli Thoroddsen talar um skýjaborgir í grein sinni hér á vef Víkurfrétta og á vefsíðu sinni en kýs að líta framhjá raunveruleikanum. Í grein sinni vegur Skúli að Árna Sigfússyni bæjarstjóra en kýs að líta framhjá því að Árni hefur veitt okkur öfluga forystu og bæði haft dug og þor til að berjast fyrir aukinni atvinnu og vel launuðum störfum fyrir íbúa Reykjanesbæjar. Skýjaborgir eru Skúla ofarlega í huga. Eftir lestur greinarinnar spyr ég mig að því hvort álverið, sem Skúli sagðist einhvern tíma vera að berjast fyrir, kísilver, gagnaver og einkasjúkrahús eru allt skýjaborgir?”
Í tilefni greinar Magneu sendi ég henni svohljóðandi bréf á vefsíðu VF:
Sæl Magnea og takk fyrir að bregðast við minni grein hér í VF - Skýjaborgin hrunin. Hugleiðingar mínar gengu fyrst og fremst út á það að endurspegla það alvarlega ástand sem hér ríkir og vekja athygli á því fyrirhyggjuleysi sem einkennt hefur störf bæjarstjóra. Það hefur ekkert með mína afstöðu til álvers í Helguvík að gera. Þú veist að ég styð hvern sem er til góðra verka í atvinnuuppbyggingu hér á Suðurnesjum og hef sjálfur verið talsmaður þess, bæði sem einstaklingur og á mínum starfsvettvangi. Þú getur reitt þig á að það verð ég áfram. Ég hef stutt álversuppbyggingu í Helguvík og ég hef gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir seinagang hennar í því sem að henni snýr í því máli, en það kemur minni grein ekkert við. Hún fjallar um það hvernig skýjaborg bæjarstjórans er hrunin vegna þess fyrirhyggjuleysis sem hann sýnir sem stjórnandi og framkvæmdastjóri bæjarfélagsins.
meira...
Rangupplýsingar LÍÚ um sjávarútvegsstefnu ESB
Það vita allir sem vilja vita að sérhagsmunir LÍÚ af því að ganga ekki í ESB eru miklir. Það ættu þeir að segja í stað þess að bygga á villandi málflutningi og því sem Frakkar nefna ,,désinformation” eða rangupplýsingum. Friðrik J Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ beitti rangupplýsingum í framsögu á fundi Alþjóðamálastofnunar H.Í. 30. apríl s.l. sem er tilefni þessarar greinar.
Í fyrsta lagi telur LÍÚ ekki vera tímabært að sækja um aðild að ESB, þar sem fiskveiðistefnan sé í endurskoðun og við mundum með ESB aðild gefa eftir forræðið yfir fiskimiðunum. Endurskoðunin ,,staðfesti að Ísland hafi enga tryggingu til auðlindanýtingar til langframa.” Það þýði að reglan um hlutfallslegan stöðugleika, sem tryggir Íslendingum einum, samkvæmt gildandi reglum ESB, aðgang að fiskistofnunum við Ísland, ,,geti verið afnumin hvenær sem er,” samkvæmt orðum Friðriks. Þetta er rangupplýsing.
meira...
Stokkum upp heilbrigðiskerfið
Það ófermdarástand sem nú ríkir í málefnum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er afleiðing stefnuleysis undafarinna 15 ára í heilbrigðismálum. Það þarf að stokka upp kerfið, það þarf nýja stefnu. Fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór vissi þetta og reyndi að leggja upp í kerfisbreytingu, en var kveðinn í kútinn vegna þess hversu illa hann stóð að málinu. Þetta var þó fyrsta alvöru tilraunin, frá því Sighvatur Björgvinsson var heilbrigðisráðherra 1994.
meira...
Suðurnesjamenn, takið þátt í breytingunum
Ég er eini Suðurnesjamaðurinn sem sækist eftir 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í prófkjöri flokksins 5.-7. mars. Það er ykkar tækifæri til að styrkja heimabyggðina og skapa möguleika á að standa vörð um sameiginlega hagsmuni og sjónarmið okkar. Láta verkefnið í hendurnar á heimamanni. Ég vonast til þess að fá stuðning ykkar í prófkjörinu, takið þátt í breytingunum. Ykkar er valið.
Ágætu Suðurnesjamenn. Bankahurnið og afleiðingar þess, bitna nú harðast á okkur Suðurnesjamönnum, hér er atvinnuleysið mest, hér er ástandið verst. Ekki dugir að sitja með hendur í skauti, heldur verðum við að horfa björtum augum til framtíðar, bretta upp ermar og takast á við vandann. Það verður að skapa traust, til að uppbyggingin og endurreisnin megi takast sem best og mörg okkar krefjast breytinga í stjórnmálum á Íslandi.
meira...
|