19. mars 2011 - Fréttir

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist ekki á álver í Helguvík þegar hún taldi upp fyrirhugaðar stórframkvæmdir hér á landi á Alþi... 

18. september 2010 - Greinar og pistlar

Magnea Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ brást við grein minni Skýjaborgin hrunin í VF. 17.sept. Greinin Magne... 

Leita

Casínó kapitalismi

Evrópusamband verkalýðsfélaga, ETUC, samþykkti í október 2008 yfirlýsingu  „Um Casínó kapítalismann“ þar sem kallað er eftir sanngirni og um leið hörðum aðgerðum vegna alþjóðlegu fjármálakrísunnar. Yfirlýsingin var send Jean-Claude Trichet, forseta Evrópska Seðlabankans, þar sem óskað er eftir afstöðu bankans við sjónarmið verkalýðssamtakanna.

Lykilatriði yfirlýsingarinnar felur í sér að aldrei framar verði unnt að leyfa sambærilegar aðstæðum að þróast á fjármálamörkuðum og að stuðningur opinbers fjármagns við fjármálafyrirtæki verði að vera háð opinberum áhrifum og eftirliti; þ.e. regluverk með fjármálstarfsemi verði að herða og að almenningur njóti ávaxta af því þegar opinberumfjármunum er veitt til aðstoðar fjármálafyrirtækjum .  Samtökin leggja  ennfremur  áherslu á mikilvægi skilviks regluverks  og virkra aðgerða til að tryggja að „raunveruleg“ fjármálstarfsemi atvinnulífsins verði ekki svelt vegna skorts á rekstrar- og fjárfestingafé.

ETUC-yfirlýsingin kveður sterkt að orði um Casíno kapítalismann og fullyrðir að núverandi fjármálakrísa eigi rætur í græðgi og glannaskap í Wall Street,  London og öðrum lykil fjármálamörkum.  Spákaupmennska hafi í miklu mæli verið leiðandi í illa grunduðum fjárfestingum. Spákaupmennska hafi aukið enn frekar á olíuhækkanir, hækkanir á matvörum og hráefni. Spákaupmennska fyrir stundargróða sem bitnar á öllum almenningi, launþegum og heilbrigðu atvinnulífi, þegar upp er staðið.

Það skyldi þó ekki vera að þessi lýsing  ETUC, um spákaupmennskuna eigi einnig við hér hjá okkur, um okkar fjárhættu  kapítalista - og er þá vægt tekið til orða.

Sjá ETUC

 

 

Útgefandi og ábyrgðarmaður: Skúli Thoroddsen - Vatnsholti 5c, Reykjanesbæ - s. 862 7905 - skuli@skuli.is