18. september 2010 - Fréttir

Magnea Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ brást við grein minni Skýjaborgin hrunin í VF. 17.sept. Greinin Magne... 

18. september 2010 - Greinar og pistlar

Magnea Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ brást við grein minni Skýjaborgin hrunin í VF. 17.sept. Greinin Magne... 

Leita

19. mars 2011

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist ekki á álver í Helguvík þegar hún taldi upp fyrirhugaðar stórframkvæmdir hér á landi á Alþingi í vikunni. Skýringin kann að vera sú að ekki er til staðar orka á Reykjanesi sem dugir fyrir álverið. Orkustofnun hefur lagst gegn stækkun Reykjanesvirkjunar a.m.k.  fyrst um sinn og á meðan bíður túrbínan í sínum umbúðum úti á nesi engum til gagns. Sú framkvæmd sem við blasti og átti að skila um tíu þúsund ársverkum á byggingartíma og skapa um tvö þúsund varanleg störf er komin í verulegt uppnám og óvíst að af henni verði.

 

Í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir ber öllum saman um mikilvægi þess að efla atvinnustigið. Það er grunnurinn að kjarabótum til lengri tíma litið og forsenda þess að kjarasamningar náist. Hagkerfið þarf innspýtingu fjármagns,  ekki síst erlendar fjárfestingar ef hagvöxtur á að aukast þannig að atvinnuleysið minnki og kaupmáttur aukist. Nú eru horfurnar frekar neikvæðar. Þess vegna er enn mikilvægara að ríkisvaldið beiti sér sérstaklega fyrir stórátaki og þá dugir ekki bara stækkun álversins í Straumsvík, Búðarhálsvirkjun, kísilmálmverksmiðja í Helguvík, hreinkísilverksmiðja í Grindavík og natríumklóratverksmiðja á Grundartanga. Þessar framkvæmdir skapa rúmlega tvö þúsund ársverk og um fimm til sex hundurð varanleg störf. Betur má ef duga skal. Nærtækasta og öflugasta verkefnið er enn og aftur álverið í Helguvík, en þá þarf að virkja í neðri hluta Þjórsár. Þar stendur hnífurinn í kúnni.

 

27. febrúar 2011

Sá Icesave- samningur sem nú liggur á borðinu og Alþingi samþykkti með miklum meirihluta er afsprengi samkomulags allra stjórnmálaflokkanna á þinginu. Bretar og Hollendingar höfðu sett það sem skilyrði fyrir þriðju samningatilrauninni að fleiri kæmu að málinu en ríkisstjórnin. Stjórnarflokkarnir samþykktu þá kröfu og stjórnarandstaðan skipaði sérstakan fulltrúa sinn í samninganefndina, Lárus Blöndal hæstaréttarlögmann, sem var í nánu samstarfi við hana  fram til þess að skrifað var undir samninginn.

 

Sjálfstæðisflokkurinn og formaður hans, Bjarni Benediksson, sýndi mikla ábyrgð með því að taka þátt í þeirri tilraun utan ríkisstjórnar og standa að nýjum samningi. Icesave-samningurinn er m.ö.o. ávöxtur þingsins alls en ekki ríkisstjórnarinnar einnar, eins og margir vilja vera láta. Reyndar hlupu tveir minnstu flokkarnir undan merkjum á endasprettinum, þó ekki þau Sif Friðleifsdóttir og Guðmundur Steingrímsson úr Framsóknarflokknum.  

 

Útgefandi og ábyrgðarmaður: Skúli Thoroddsen - Vatnsholti 5c, Reykjanesbæ - s. 862 7905 - skuli@skuli.is